Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 76,9 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 samanborið við 81,2 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um tæplega 4,3 milljarða króna eða 5,3% á milli ára, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Aflaverðmæti botnfisks var rúmlega 48,3 milljarðar króna og dróst saman um 8,3% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 24,7 milljarðar og dróst saman um 9,1% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6,3 milljörðum og dróst saman um 14,2% en verðmæti karfaaflans nam tæpum 7 milljörðum, sem er 11,2% samdráttur frá fyrstu sex mánuðum ársins 2012. Verðmæti úthafskarfa nam 2,1 milljarði króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 32,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti ufsaaflans jókst um 5,7% milli ára og nam tæpum 4,4 milljörðum króna í janúar til júní 2013.
Verðmæti uppsjávarafla nam tæpum 20 milljörðum króna í janúar til júní 2013, sem er um 7,9% aukning frá fyrra ári. Þá aukningu má rekja til loðnuafla og kolmunnaafla. Aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er 19,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti kolmunna jókst um 9,8% frá fyrra ári og var um 2,8 milljarðar króna í janúar til júní 2013. Aflaverðmæti makríls var um 758 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er 21,8% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti flatfisksafla nam tæpum 5 milljörðum króna, sem er 23% samdráttur frá janúar til júní 2012.