Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 98,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins 2011 samanborið við 92,4 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,4 milljarða króna eða 6,9% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks fyrstu átta mánuði ársins nam 60,5 milljörðum króna og dróst saman um 5,8% sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 28,9 milljarðar og dróst saman um 4% frá fyrra ári.

Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum og dróst saman um 31,8%, en verðmæti karfaaflans nam 8,4 milljörðum, sem er 9,9% aukning miðað við sama tímabil árið  2010. Verðmæti ufsaaflans jókst um 1,9% milli ára í 5,7 milljarða.
Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 6,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins sem er 2,9% samdráttur frá fyrra ári.

Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 48,2% milli ára og nam 28,5 milljörðum.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.