Áhöfnin á togaranum Oddeyrinni EA-210 hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er framkomnum fiskveiðifrumvörpum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Frumvörpin hafi í för með sér tekjuskerðingu skipverja, störfum þeirra sé stefnt í hættu og kvótinn jafnvel tekinn af skipinu og fluttur í einhvern pott þar sem geðþóttaákvörðun stjórnmálamanna komi til með að ráða því hverjir og hvar menn fá vinnu.

,,Með þessu er gerð atlaga að heilli starfsstétt sem setur hundruð manna og fjölskyldur þeirra í  algjört uppnám. Rúmlega 30 fjölskyldur eiga allt sitt undir rekstri og kvóta þessa skips auk þess sem fleiri hafa svo atvinnu af því að þjónusta skipið í landlegum og á meðan skipið er á sjó,” segir í yfirlýsingunni.

Ennfremur segir: ,,Það með ólíkindum að hægt sé að fjalla um þessa atvinnugrein og stuðla að hruni hennar í núverandi mynd eins og engir einstaklingar eigi þar hlut að máli nema örfáir útgerðarmenn. Við það getum við ekki lengur unað. Hér stundum við okkar vinnu og viljum gera áfram.

Nær væri að ríkistjórnin færi að snúa sér að raunverulegum vandamálum þjóðarinnar því að nægu er þar að taka. Í stað þess að veikja stoðir samfélagsins enn frekar með niðurrfi undirstöðu atvinnugreinar Íslendinga  og ekki vitandi hvert það leiðir fyrir stóran hóp Íslendinga.”