Út er komin hjá Bókaútgáfunni Hólum bókin: Þetta var nú bara svona -  ævisaga Jóns Magnússonar, skipstjóra og athafnamanns á Patreksfirði, skráð af Jóhanni Guðna Reynissyni. Þetta er baráttu saga manns sem var ekki hugað líf fljótlega eftir fæðingu, hætti að reykja 12 ára gamall og hefur farið sínar eigin leiðir í lífinu og berst þá ekki alltaf með straumnum.

Jón er landsþekktur skipstjóri og aflamaður en fyrstu árin voru þyrnum stráð þar sem fyrir kom til dæmis að móðir pilts, sem hann vildi fá með sér á sjóinn, mætti þessum unga skipstjóra í dyragættinni með hnífinn á lofti.

Í frétt frá forlaginu segir að þau hjónin, Jón og Lilja Jónsdóttir, hafi rekið Odda hf. og Vestra ehf. á Patreksfirði um árabil og aldrei selt eitt aukatekið kílógramm af kvóta frá útgerðum sínum. Starfseminni hafi fyrst og fremst verið ætlað að afla byggðarlaginu lífsbjargar og veita fólkinu þar eins trygga atvinnu og auðið er.