Aðalstarfsmannastjóri (e. Chief of Staff) í herstjórnarmiðstöð Atlantshafsbandalagsins í Evrópu, þýski aðmírálinn Joachim Rühle, heimsótti Ísland í byrjun júní.

Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar þar sem segir Rühle hafi verið hér á landi í boði utanríkisráðuneytisins, meðal annars til að ræða gistiríkjastuðning íslenskra stjórnvalda gagnvart flugsveitum og skipaflota Atlantshafsbandalagsins ásamt því að kynna sér varnartengda innviði, tækjabúnað og mannauð sem er til staðar á Íslandi.

Kynnti aðmírálinn sér meðal annars starfsemi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli, varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og landhelgishluta Landhelgisgæslu Íslands.

Upplýstur um björgunargetu Landhelgisgæslunnar

„Að loknum vel heppnuðum og upplýsandi fundi í utanríkisráðuneytinu með skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu heimsótti Rühle öryggissvæðið í Keflavík. Þar fékk hann kynningu á verkefnum stjórnstöðvar, P-8 flugsveitar kafbátaleitarflugvéla, F-15 flugsveitar sem stödd var við loftrýmisgæslu á Íslandi í júní og aðstöðu séraðgerða- og sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar sem þjónustar meðal annars flugsveitir sem annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Síðari daginn var Rühle kynnt eftirlits- leitar og björgunargeta Landhelgisgæslunnar og hvernig slík verkefni eru unnin í samstarfi við bæði innlenda aðila sem og nágrannaþjóðirnar.

Fór um borð í Þór

„Aðmírálinn sat stöðufund í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Reykjavík, kynnti sér starfsemi siglingaöryggis- og sjómælingadeildar sem og aðstöðu séraðgerða- og sprengjueyðingardeildar í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Að því loknu fékk hann kynningu á flugdeild Landhelgisgæslunnar og að lokum fór hann um borð í varðskipið Þór sem statt var í árlegu vitaverkefni ásamt starfsmönnum Vegagerðarinnar í innanverðum Faxaflóa,“ segir álhg.is.

Að endingu segir frá því að þegar Rühle aðmíráll var ungt sjóliðsforingjaefni í liðsforingjaskóla þýska sjóhersins, var Reykjavík viðkomustaður í hans fyrstu sjóferð sumarið 1979. Kvaðst hann eiga góðar minningar frá þeim tíma.