Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að grípa til samþættra aðgerða til að styðja við byggð í Grímsey. Í fyrsta lagi með því að styrkja stöðu útgerðar frá Grímsey, í öðru lagi með því að bæta samgöngur við Grímsey, í þriðja lagi með því að framkvæma hagkvæmniathugun á lækkun húshitunarkostnaðar og í fjórða lagi með verkefninu „Brothættar byggðir“.
Frá þessu er skýrt á vef forsætisráðuneytisins. Vinnuhópur skipaður fulltrúum þriggja ráðuneyta var settur á laggirnar í ágúst sl. til að skoða stöðu Grímseyjar í ljósi fyrirliggjandi tillagna frá aðgerðarhópi Akureyrarbæjar. Það er mat vinnuhópsins að byggð í Grímsey muni eiga undir högg að sækja komi ekki til aðgerða stjórnvalda nú.
„Það er áríðandi að bregðast við þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur verði í Grímsey undanfarin ár. Heimamenn óttast að ef ekkert verði að gert leggist útgerð í Grímsey af og jafnvel búseta í framhaldi af því. Ég hef trú á að með þessum aðgerðum sem nú liggja fyrir og byggja að talsverðu leyti á tillögum heimamanna verði unnt að styðja við áframhaldandi búsetu í þessari nyrstu byggð landsins. Sérstaða eyjunnar er óumdeild.“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Vinnuhópurinn heimsótti Grímsey dagana 19. – 20. október sl. og kynnti drög að tillögum fyrir heimamönnum.