Ísfisktogarinn Gullver NS landaði í Hafnarfirði um síðustu helgi.

„Við vorum í eina fjóra daga að veiðum og fengum aflann mest í kantinum vestan við Halann, á Menjunni svokallaðri. Aflinn var 96 tonn, mest þorskur, töluvert af karfa og síðan dálítið af ufsa. Þetta gekk bara nokkuð vel," segir Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Landa á Seyðisfirði á fimmtudag

„Það var góður afli til að byrja með en síðan hægðist á. Við ætluðum að blanda þetta meira í restina en það reyndist þrautin þyngri. Veður var gott nánast allan tímann en það var þó bræluskítur alveg undir lokin. Við fórum út á laugardagskvöld strax eftir löndun og nú erum við að veiðum á Pínulitlabanka út af Reykjaneshrygg. Það er ljóst að við náum að hringa landið í þessu úthaldi en gert er ráð fyrir löndun í heimahöfn á Seyðisfirði á fimmtudag,” segir Hjálmar.