Heildarafli botnfisks og flatfisks dróst saman um 80% frá 1. janúar til 8. febrúar miðað við sama tíma í fyrra. Aflinn á þessu tímabili var 48.000 tonn í fyrra en er 9.300 tonn í ár, samkvæmt bráðabirgðatölum um landaðan afla á vef Fiskistofu. Munurinn er 38.700 tonn.

Þótt smábátar hafi verið iðnir við kolann í verkfallinu er afli þeirra næstum hinn sami og í fyrra eða um 7.800 tonn.

Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.