Rúmlega 80% af starfsfólki í fiskeldi býr á landsbyggðinni og um 80% af atvinnutekjum í greininni koma í hlut einstaklinga sem þar búa. Þetta hlutfall er á svipuðu róli og í sjávarútvegi og það er því aðeins landbúnaður sem stendur greinunum framar í þessum efnum. Frá þessu segir á www.radarinn.is.
Af einstaka landshlutum skera Vestfirðir sig úr, en rekja má um þriðjung alls launafólks og atvinnutekna í fiskeldi til einstaklinga sem þar búa. Þetta má sjá í tölum Hagstofunnar um staðgreiðsluskyldar launagreiðslur, en þær tölur eru birtar niður á landshluta og einstaka sveitarfélög. Það eru afar mikilvægar upplýsingar, enda sýna þær bæði hvernig tekjur einstaka atvinnugreina dreifast um landið og hvaða atvinnugreinar það eru sem standa undir tekjum íbúa á einstaka landsvæðum.
Að jafnaði fengu um 280 einstaklingar greiddar staðgreiðsluskyldar launagreiðslur í fiskeldi í mánuði hverjum á fyrstu níu mánuðum ársins á Vestfjörðum. Miðað við sama tímabil árið 2013 hefur fjöldinn fjórfaldast. Sama er upp á teningnum með staðgreiðsluskyldar launagreiðslur alls launafólks innan greinarinnar á Vestfjörðum, sem hér eru nefndar atvinnutekjur. Þær námu ríflega 2.500 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er átta sinnum hærri fjárhæð að raunvirði en á sama tímabili árið 2013. Nánar um þetta hér.