Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur úthlutað 6.141 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015.

Alls er byggðakvóta úthlutað til 31 sveitarfélags og í þeim fengu 48 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2004/2005 til fiskveiðiársins 2013/2014.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá átta byggðarlög þá úthlutun.

Á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis má sjá nánar hvert úthlutinin fer.