Árið 2013 var heildarkvóti á makríl við Austur-Grænland vegna tilraunaveiða 65.000 lestir en alls veiddust um 52.000 lestir í sumar, að því er fram kemur í frétt á vef Evrópuvaktarinnar .

Aflanum var annaðhvort landað á Íslandi eða beint um borð í frystiskip á miðunum.

Í tilkynningu frá grænlenska fyrirtækin Royal Greenland um veiðar á makríl á árinu 2013 segir að félagið hafi átt hlut að makrílveiðunum með leigu á kínversku skipi auk þess sem nokkur íslensk skip hafi veitt á grundvelli leyfa til útgerða með tengsl við Royal Greenland. Þá hafi tveir grænlenskir togarar Tuugaalik og Timmiarmiut, sem báðir tengist Royal Greenland, tekið þátt í tilraunaveiðunum. Vonar félagið að það geti nýtt eigin skip til veiðanna þegar fram líða stundir. Skip Royal Greenland veiddu um 10.000 lestir.

Meginaflinn féll í hlut Polar Seafood en einnig fengu önnur útgerðarfélög með tengsl við Grænland nokkurn afla í sinn hlut.