Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa unnið að sameiginlegu fiskveiðieftirliti í sumar sem hefur leitt til tveggja skyndilokana til verndar smáfiski.

Að þessu sinni fór eftirlit fram dagana 18. júní til 1. júlí bæði á grunn- og djúpslóð, umhverfis Ísland. Farið var með varðskipinu Þór og fóru eftirlitsmenn Fiskistofu um borð í báta til að kanna afla, aflasamsetningu, veiðarfæri, afladagbækur og annað sem tilheyrir veiðieftirliti.

Alls var farið um borð í 38 báta, þar af 31 strandveiðibát, 2 línubáta, 2 grásleppubáta, dragnótarbát, humarbát og rækjubát. Gerðar voru 5 brotaskýrslur og voru þær allar vegna afladagbókarbrota, en í þremur tilvikum var afladagbók ekki um borð og í tveimur tilvikum vantaði að skrá róður/róðra í afladagbók. Einnig fóru fram lengdarmælingar í 8 bátum.

Mældir fiskar/rækjur voru 1.738 og leiddi það til tveggja skyndilokana, til verndar smáfiski.