Fiskeldissjóður hefur auglýst eftir umsóknum en til úthlutunar á árinu eru 456.100.000 kr.
Við úthlutun styrkja úr sjóðnum er sérstaklega horft til verkefna sem snúa að styrkari samfélagsgerð, uppbyggingu innviða, loftslagsmarkmiðum og umhverfisvernd, tengingu við sjókvíaeldis og nýsköpun hverskyns, tengd ofangreindum þáttum
Sveitarfélög þar sem sjókvíaeldi er stundað eru hvött til að sækja um en umsóknum skulu fylgja lýsing á markmiðum verkefnisins og ítarleg og sundurliðuð framkvæmdar- og kostnaðaráætlun um verkefni eða verkþætti.
Fiskeldissjóður starfar á grundvelli 7. gr. laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, mánudaginn 10. mars 2025.