Umsóknir um strandveiðileyfi 2014 eru orðnar liðlega 350, en fyrsti veiðidagurinn er á mánudag 5. maí, að því er segir á vefsíðu Fiskistofu.
Umsóknir á svæði A eru 169, á svæði B eru þær 65, á svæði C eru þær 45 og á svæði D eru þær 74.
Sjá nánar almennar upplýsingar um strandveiðar á vef Fiskistofu.