Alls nýttu 500 bátar leyfi sín til strandveiða á öðrum degi veiðanna, 6. maí, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda.
Afraksturinn var 324 tonn af þorski, 648 kg að meðaltali á bát.
Boðin voru upp á fiskmörkuðum landsins 225 tonn af óslægðum þorski veiddum á handfæri sem skilaði 475 króna meðalverði fyrir hvert kíló.
Töflur sem hér fylgja sýna tölur um veiðina í gær og samanlagða stöðu eftir tveggja daga veiði.
