Fiskafli íslenskra skipa í mars 2016 voru tæp 132 þúsund tonn, sem er 31% minni afli en í mars í fyrra, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofunni.

Botnfiskafli dróst saman um 8%, úr 53,9 þúsund tonnum í 49,3 þúsund tonn. Uppsjávarafli minnkaði úr tæpum 136 þúsund tonnum í rúm 79 þúsund tonn, sem er 42% aflasamdráttur. Á 12 mánaða tímabili hefur aflamagn minnkað um 109 þúsund tonn á milli ára, sem er mest megnis vegna minni uppsjávarafla. Aflinn í mars metinn á föstu verði var 12,6% minni en í mars 2015.