Gangi áform stjórnvalda eftir um 27% veiðigjald af vergri framlegð (EBITDA) fiskiskipaflotans munu útgerðir í Vestmannaeyjum greiða 1.245 milljónir króna á ári m.v. fyrirliggjandi forsendur á þessu fiskveiðiári.
Þetta má lesa út úr svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar alþingismanns. Til þess að setja þessa skattgreiðslu í samhengi við áþreifanlegt dæmi, þá nemur þessi fjárhæð hátt upp í kaupverðið á hinum nýja togara Vestmannaeyinga, Þórunni Sveinsdóttir VE 401, segir á vef LÍÚ.
,,Þessi áform stjórnvalda munu hafa mjög alvarleg áhrif á fjárhagslega stöðu fjölmargra sjávarútvegsfyrirtækja og byggðarlög. Viðbúið er að fjöldi fyrirtækja muni neyðast til að hætta rekstri, sameinast arðbærustu fyrirtækjunum eða þau lendi í þroti,” segir á vefnum.
Útgerðir í Reykjavík munu greiða næsthæsta veiðigjaldið samkvæmt þessum forsendum eða 1.150 milljónir króna, þar á eftir koma Grindavík með 654 milljónir króna, Akranes 496 milljónir króna, Neskaupstaður 456 milljónir króna og Hornafjörður mun greiða 388 milljónir króna.
Á vef LÍÚ
má sjá lista yfir veiðigjald í öll byggðarlög á landinu miðað við 27% auðlindagjald.