25 tonn af bláuggatúnfiski koma í hlut Íslands samkvæmt veiðiheimildum Atlantshafs túnfiskveiðaráðinu (ICCAT). Veiðar mega hefjast á línu frá 1. ágúst 2014 á svæðinu suður af Íslandi.
Ísland hefur verið aðili að Atlantshafs túnfiskveiðiráðinu (ICCAT) frá árinu 2002.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu skulu útgerðir sem hafa áhuga á að nýta þessa heimild sækja um til ráðuneytisins fyrir 30. júní 2014. Skilyrði er að veiðiskip sé að lágmarki 500 brúttótonn.
Í umsókninni skal koma fram nánari áætlun um veiðarnar, m.a. veiðiskip, aðstöðu til aflameðferðar s.s. kælingu eða frystingu afla um borð, löndunarhöfn sem og söluaðila og markaðsland. Við ákvörðun um úthlutun verður litið til allra þessara atriða.
Skilyrði fyrir veiðum er að eftirlitsmaður frá Fiskistofu sé um borð, skipið sé búið rafrænni afladagbók og hafi IMO númer. Ráðuneytið áskilur sér því rétt til að hafna umsóknum séu líkur til að viðkomandi skip sé að einhverju leiti óhentugt eða vanbúið til veiðanna með tilliti til öryggis eða búnaðar.