Fiskistofa hefur lokið álagningu gjalds vegna umframafla strandveiðibáta á síðustu vertíð. Þegar um strandveiðar ræðir er lagt á gjald sem nemur verðmæti þess afla sem var umfram 650 þorskígildiskíló í veiðiferð, skipt hlutfallslega eftir tegundum. Lagt var á fyrir hvern mánuð fyrir sig og hverjum báti sem lenti í álagningu send tilkynning þess efnis fyrir hvern mánuð.

Alls voru 969 slíkar tilkynningar sendar út og nemur upphæð gjaldsins sem lagt var á um 24,7 milljónum kr. sem greiðast í Verkefnasjóð sjávarútvegsins. Þetta er talsverð aukning frá vertíðinni í fyrra en þá voru sendar út 632 tilkynningar og nam samanlögð upphæð gjaldsins þá um 10,8 milljónum kr.

Sjá nánar álagningu eftir mánuðum á vef Fiskistofu.