Úthlutað hefur verið styrkjum til rafvæðingar hafna vítt og breitt um landið. Verkefnið er hluti af fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 heimsfaraldursins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Alls verður 210 milljónum veitt til styrkja til að stuðla að frekari rafvæðingu hafna og skiptist styrkféð með eftirfarandi hætti.
Akureyri - 43,8
Dalvík - 10,3
Faxaflóahafnir - 100,0
Fjarðabyggð - 11,5
Hafnarfjörður - 12,0
Reykjanesbær - 12,0
Seyðisfjörður - 8,9
Snæfellsbær - 6,2
Vestmannaeyjar - 3,4
Þorlákshöfn - 1,9
Styrkir eru veittir til þeirra hafna sem settu fram verkefni sem féllu að skilyrðum átaksins. Verkefni sem styrkt verða þurfa að hefjast eigi síðar en 1. september 2020 og vera lokið fyrir 1. apríl 2021.