Gefin hefur verið út reglugerð um ráðstöfun 2.000 tonna viðbótaraflaheimilda á markíl á árinu 2015. Samkvæmt henni er hún eyrnamerkt til smábáta - báta styttri en 15 metra að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn að stærð.
Helstu atriði reglugerðarinnar eru þau að hún gildir um aflaheimildir á makríl á árinu 2015. Greiða þarf 8 kr. gjald fyrir hvert kíló og bátar sem fengu úthlutað 27 tonnum eða meira samkvæmt reglugerð 532/2015 þurfa að hafa veitt 80% sinna veiðiheimilda til að öðlast rétt til úthlutunar úr 2.000 tonna pottinum.
Bátar sem eru innan framangreindra stærðarmarka og fengu enga úthlutun eða minni en 27 tonn geta fengið úthlutað án veiðiskyldu.
Framsal á heimildum úr 2.000 tonna pottinum er óheimilt. Hámarksúthlutun á bát verða 15 tonn.