Heildarafli íslenskra fiskiskipa var um 144 þúsund tonn í maí 2015, sem er nærri 12.500 tonnum meiri afli en í maí 2014.

Botnfiskafli dróst saman um 6,8% samanborið við maí 2014.  Flatfiskafli jókst um 30,8% frá fyrra ári, og uppsjávarafli um 17,7% sem var nær eingöngu kolmunni.

Á síðustu 12 mánuðum hefur heildarafli aukist um 235 þúsund tonn eða 21,9%, sem skýrist af mun meiri uppsjávarafla en á fyrra 12 mánaða tímabili.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.