Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 96 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2012 samanborið við 84 milljarð á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11,5 milljarða eða tæplega 14% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var 59 milljarðar og jókst um tæp 8% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 55 milljarðar. Verðmæti þorskafla var um 30 milljarður og jókst um 14% frá fyrra ári.

Aflaverðmæti ýsu nam 8 milljörðum og jókst um 19% en verðmæti karfaaflans nam tæpum 9 milljörðum, sem er rumlega14% aukning frá fyrstu sjö mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um tæp 5% milli ára og nam 5 milljörðum  króna í janúar til júlí 2012.

Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 25 milljörðum króna í janúar til júlí 2012, sem er 29% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti rúmum 13 milljörðum króna samanborið við tæplega 9 milljarða fyrstu sjö mánuði ársins 2011.

Einnig var 1,6 milljarða króna aukning í kolmunnaafla, sem nam um 2,5 milljörðum króna árið 2012. Verðmæti makrílafla jókst um tæp 2% á milli ára og nam tæpum 7 milljörðum króna í janúar til júlí 2012.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.