Í mars var aflaverðmæti íslenskra skipa um 13,5% lægra en í mars 2013. Mikil minnkun í uppsjávarafla hefur þar mest að segja. Einnig veiddist mun minna af skelfiski en í sama mánuði í fyrra.

Aflaverðmæti íslenskra skipa á tólf mánaða tímabili frá apríl 2013 til mars 2014 dróst saman um 11,4% miðað við sama tímabil ári áður. Verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 31,8% milli tímabilanna.

Sjá nánar á vef Hagstofu .