Út er komið ritið Sjávarklasinn á Íslandi: Efnahagsleg umsvif og afkoma 2013. Fjórða árið í röð er lýst umfangi sjávarklasans í hagkerfinu, breytingum í sjávarútvegi og hliðargreinum hans og spáum í sóknarfæri framtíðar.
Á meðal þess sem kemur fram er:
• Sjávarklasinn skapar allt að 30% landsframleiðslunnar
• 12% vöxtur í tæknigeira sjávarklasans og stækkandi pantanabækur
• Stórar fjárfestingar í sjávarútvegi og fiskvinnslu
• Áframhaldandi samþjöppun á öllum sviðum
• Stóraukinn útflutningur ferskra afurða
• Lækkandi verð bolfiskafurða
• 6,5 milljarða króna tekjur af fiskeldi
• 19 milljarða króna tekjur af flutningum með sjávarafurðir
• Vaxtarkippur í útflutningi niðursuðuvara
• Breyttar áherslur sölufyrirtækja
• Mikil gerjun í sjávarlíftækni
Hægt er að nálgast skýrsluna HÉR