Á fyrstu níu mánuðum ársins voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 177 milljarða. Á sama tíma í fyrra nam þessi útflutningur 201 milljarði. Samdrátturinn er tæp 12%. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Fyrstu níu mánuði ársins 2014 voru fluttar út vörur fyrir 426,8 milljarða króna. Verðmæti vöruútflutnings var 28,2 milljörðum eða 6,2% lægra á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur eru 51,8% alls útflutnings það sem af er árinu og er verðmæti þeirra 5,7% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna áls. Sjávarafurðir eru 41,5% alls vöruútflutnings.