Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gær og landaði 95 tonnum. Togarinn hélt strax aftur til veiða að löndun lokinni í stutta veiðiferð en verður svo tekinn í slipp og gengst undir 40 ára skoðun.

Meginhluti afla Gullvers í síðasta túr var þorskur, ýsa og karfi. Steinþór Hálfdanarson skipstjóri segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að veiðin hafi gengið vel.

Steinþór Hálfdanarson, skipstjóri á Gullveri. Mynd/ÞB
Steinþór Hálfdanarson, skipstjóri á Gullveri. Mynd/ÞB
© Þorgeir Baldursson (.)

„Þetta var sami hringur hjá okkur og oft áður. Við byrjuðum að veiða á Herðablaðinu, síðan var veitt Utanfótar, í Hvalbakshalli, í Berufjarðarál, á Papagrunni og í Lónsdýpinu. Loks var endað í Reyðarfjarðardýpinu en þar var lítið að hafa. Eins og fyrr í sumar var blíðuveður. Það verður að segjast að veðrið í nánast allt sumar hefur verið býsna gott og ekki yfir neinu að kvarta í þeim efnum. Haldið var til veiða strax að löndun lokinni en þessi túr verður stuttur, svokallaður stubbur, og við gerum ráð fyrir að landa á ný á fimmtudag. Þá tekur við slippur hjá skipinu og þar verður framkvæmd 40 ára skoðun á því,“ segir Steinþór.