Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti skipverja sem slasaðist á hendi við vinnu um borð í fiskiskipi sem var við veiðar norður af Siglufirði í gærkvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

„Áhöfn skipsins hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, tilkynnti um atvikið og sigldi í átt að Siglufirði. Við nánara mat á ástandi mannsins, og þar sem löng sigling var til Siglufjarðar og veðurspá slæm, var ákveðið að sækja hann með þyrlu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar tók á loft frá Reykjavík um klukkan 19:30 og var komin að skipinu einni og hálfri klukkustund síðar en þá var skipið statt um 60 sjómílur norður af Siglufirði. Vel gekk að hífa skipverjann um borð í þyrluna.

Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli um kl. 23 og var maðurinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.