Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað annars vegar og á Patreksfirði hins vegar voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoðar.
Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan hálf fimm í nótt vegna skipverja á smærri fiskibát sem hafði slasast á fæti og ekki í ástandi til að sigla bátnum til hafnar. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði jafnframt út áhöfn þyrlu.
Hafbjörg lagði úr höfn rétt fyrir klukkan 5 með sjúkraflutningamann um borð og um svipað leiti fór þyrla í loftið frá Reykjavík.
Hafbjörg var komin að bátnum sem var staddur um 16 sjómílur austur af Norðfjarðarhorni, rétt fyrir klukkan 6 í morgun og fóru 2 úr áhöfn hennar um borð í bátinn ásamt sjúkraflutningamanni. Einn úr áhöfn Hafbjargar tók þá við stjórn fiskibátsins á meðan búið var um skipverjann og hann undirbúinn undir hífingu um borð í þyrlu.
TF Eir var kominn að bátnum rétt upp úr klukkan 7 í morgun og hífði sjúklinginn í börum frá borði fiskibátsins um borð í þyrluna.
Hafbjörg og fiskibáturinn tóku þá stefnuna til Neskaupstaðar en TF Eir flaug til Egilstaða þar sem tekið var eldsneyti. Þyrlan flaug svo áfram með sjúklinginn til Reykjavíkur til aðhlynningar.
Rekald í skrúfu
Rétt fyrir hálf sjö í morgun var svo áhöfn björgunarskipsins Varðar II á Patreksfirði kölluð út vegna fiskibáts sem hafði fengið rekald í skrúfuna og gat ekki haldið áfram veiðum. Vörður II fór úr höfn á Patreksfirði rétt fyrir sjö og hélt áleiðis að bátnum sem var þá staddur í mynni Patreksfjarðar. Vel gekk að koma taug á milli skipanna og Vörður II tók stefnuna inn til Patreksfjarðar með bátinn í togi og kom inn til hafnar nú rétt upp úr klukkan 9.
Um tvö leitið í nótt var björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst stýri rétt austur af Papey. Björgunarfólk fór út til aðstoðar og tók bátinn í tog sem gekk vel og voru allir komnir að bryggju um hálf fimm í nótt. Þetta var annað útkall Báru á stuttum tíma því seinni partinn í gær var sveitin einnig kölluð út vegna einstaklings sem hafði fallið á reiðhjóli og handleggsbrotnað inn í Hamarsdal. Björgunarfólk fór ásamt sjúkraflutningum og flutti viðkomandi fram dalinn og í sjúkrabíl.