Þessa dagana er verið að landa 7.400 tonnum af kolmunna í Neskaupstað úr fjórum skipum. Reikna skipstjórarnir með að veiðum í færeysku lögsögunni sé lokið að sinni.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir frá því að Barði NK hafi komið á þriðjudag með 1.350 tonn, landað hafi verið 2.700 tonnum úr Vilhelm Þorsteinssyni EA í gær og í dag hafi Beitir NK og Börkur NK komið til hafnar. Beitir sé með um 1.400 tonn og Börkur með tæplega 2.000.

Kolmunninn var veiddur suður af Færeyjum á hinu svonefnda gráa svæði í færeysku lögsögunni.

Taka troll sem henta fyrir miðin við Rockall

„Þetta er búið að vera bölvað sarg,” er haft eftir Guðmundi Þ. Jónssyni, skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni og Þorkell Pétursson á Barða talar um leiðindanudd. Veiðin hafi verið róleg að undanförnu og veður óhagstætt til veiða. Reyndar hafi skipin þurf að leita vars um tíma og bíða af sér verstu lætin.

Áfram segir að skipstjórarnir geri ráð fyrir að kolmunnaveiðum í færeyskri lögsögu sé lokið að sinni og nú verði haldið á miðin við Rockall. Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, og Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, segi að nú yrðu tekin troll sem hentuðu vel til veiða á þeim slóðum. Þau troll séu minni og sterkari en trollin sem notuð séu í færeysku lögsögunni.

Þokkalegt hráefni þrátt fyrir langa túra

Þá er rætt við Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóra í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, sem kveður kolmunnann sem nú sé að berast virðast vera þokkalegasta hráefni þrátt fyrir að skipin hefðu verið lengi að veiðum.

„Aflinn er vel kældur um borð í skipunum og það skiptir öllu máli. Verksmiðjan er tvískipt og nú er unnið á fullum afköstum í stóru verksmiðjunni en sú minni er ekki í gangi eins og er. Minni verksmiðjan verður fljótlega gangsett líka og þá verður hráefnið sem skipin koma með unnið eins hratt og mögulegt er,” segir Hafþór á vef Síldarvinnslunnar.