Vilhelm Þorsteinssn EA 11 er að koma til hafnar í Neskaupstað með 1.580 tonn af makríl. Samherji segir frá því á vef sínum að stærsta holið í túrnum hafi verið um 660 tonn, og er það jafnframt hið stærsta á vertíðinni.

Haft er eftir Hirti Valssyni skipstjóra að makríllinn syndi nú hratt til norðurs og ómögulegt að áætla hvernig vertíðin þróast.

Landað var úr skipinu í Færeyjum síðasta sunnudag og haldið var aftur áleiðis á miðin um kvöldið. Þau eru norður af Jan Mayen, siglingin var um 600 sjómílur. Hjörtur Valsson segir að veiðarnar hafi gengið vel og hráefnið gott til vinnslu. Innan við sólarhring að fylla skipið

„Fyrsta holið skilaði okkur um 260 tonnum eftir að hafa dregið í fjóra tíma. Við köstuðum þrisvar sinnum, auk þess sem dælt var yfir til okkar einu holi úr Beiti NK. Þetta er ágætis fiskur eða um 480 grömm. Síðasta holið var mjög stórt, 660 tonn. Samtals vorum við nítján klukkustundir á veiðum í þessum túr. Allur búnaður í skipinu er öflugur og vel gekk að dæla hráefninu í tankana og kæla, þannig að það haldist sem best til vinnslu.“

Makríllinn á hraðferð

„Veiðin hefur verið ágæt síðasta hálfa mánuðinn en það er með öllu ómögulegt að sjá fyrir sér hvernig vertíðin þróast. Makríllinn er á hraðferð norður, færir sig um 30 til 50 mílur á sólarhring. Miðin eru austan við Jan Mayen, norðan við 72. gráðu, þannig að siglingin á miðin lengist í raun með hverjum deginum sem líður. Ég held að flotinn hafi aldrei áður sótt svona norðarlega. Þetta þýðir að megnið af túrunum fer í að sigla fram og til baka en á móti kemur að veiðin er nokkuð góð, svo og hráefnið.“

Unnið alla verslunarmannahelgina

„Það er blíða þessa stundina og sléttur sjór en ég býst við mótvindi á leiðinni. Siglingin til Neskaupstaðar er um 550 sjómílur og við löndum á föstudaginn, sem þýðir að það verður unnið alla verslunarmannahelgina í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Mér skilst að það taki hátt í tvo sólarhringa að vinna hráefnið sem við komum með.“

Strax á miðin aftur

„Það er alltaf gaman þegar vel gengur eins og núna. Siglingin á miðin er löng og þá er líka eins gott að flotinn sé öflugur, vel búinn og skili góðu hráefni. Olíukostnaðurinn hefur hækkað mikið og þá kemur sér vel að hafa skip sem nýtir afl vélanna sem best. Við erum átta í áhöfn, allt saman hörku karlar. Skipið er frábært og við erum að landa góðu hráefni. Á vertíð eins og þessari er ekkert verið að spá í verslunarmannahelgina, við höldum á miðin strax að lokinni löndun,“ segir Hjörtur Valsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11.