Ísland hefur náð samkomulagi um fríverslunarsamning við Tæland.
Segir utanríkisráðuneytið í tilkynningu að samningurinn kveði á um tollfríðindi fyrir allar helstu útflutningsafurðir Íslands til Tælands. „Samningurinn tryggir meðal annars fullt tollfrelsi inn á Tælandsmarkað fyrir flök af laxi, þorsk, grálúðu og loðnuhrogn, vélbúnað til matvælaframleiðslu og stoðtæki,“ segir í tilkynningunni.
Tryggi að íslensk fyrirtæki búi ávallt við bestu viðskiptakjör
Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra að fríverslunarsamningur við Tæland muni bæta samkeppnisstöðu íslenskra útflytjenda á hinum stóra og ört vaxandi Tælandsmarkaði.
„Samningurinn fylgir þannig eftir útflutningsstefnu Íslands, sem unnin var í samstarfi við atvinnulífið. Þar var lögð áhersla á að bæta aðgang íslenskra fyrirtækja að mörkuðum Suðaustur-Asíu. Þar höfum við náð góðum árangri síðustu ár með fríverslunarsamningum við Indland, Filippseyjar og Indónesíu. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú þegar framleiðsla og viðskiptaumhverfi Asíu er að taka örum breytingum og tryggir að íslensk fyrirtæki búi ávallt við bestu viðskiptakjör. Þannig tryggjum við hagsmuni Íslands,“ segir utanríkisráðherra.
Samstarf á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnunar
Enn fremur segir að samningurinn kveði einnig á um samstarfsverkefni milli íslenskra og tælenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnunar. „Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum enn fremur víðtækari heimildir til fjárfestinga á Tælandi, auk þess að bæta aðgang íslenskra þjónustufyrirtækja að tælenskum þjónustumarkaði. Þá fjallar samningurinn meðal annars um vernd hugverka og sjálfbær viðskipti,“ segir í tilkynningunni þar sem jafnframt kemur fram að samningurinn sem gengið hafi verið frá eftir tveggja ára sameiginlegar með hinum EFTA-ríkjunum; Liechtenstein, Noregi og Sviss, taki gildi þegar Ísland og Tæland hafi lokið fullgildingarferli sínu.