Rúmlega 6.000 tonnum hefur verið slátrað úr kvíum Háafells í Vigurál í Ísafjarðardjúpi síðustu 11 mánuði. Ætla má að útflutningsverðmætið sé um 7 milljarðar króna, að því er fram kemur í frétt hjá www.bb.is
Um er að ræða uppskeru úr fyrstu laxaútsetningu Háafells sem fór út í sjókvíar árið 2022 en seiðin komu bæði frá seiðaeldisstöð Háafells á Nauteyri og seiðaeldisstöð Arctic Fish í Norðurbotni. Laxinn hefur verið unnin í Drimlu í Bolungarvík.
Fiskurinn var á bilinu 17-24 mánuði í sjó allt eftir því hvenær hann var settur út en hann var að jafnaði 200 grömm við útsetningu. Afföll úr þeim 8 kvíum sem hafa verið tæmdar eru einungis um 2,42% og eru það afar ánægjulegar niðurstöður segir í frétt Háafells.
Gæðahlutfall laxins er einnig mjög gott eða um 97.2% af magninu var fyrsta flokks eða af ,,superior” gæðum.