Oddi hf á Patreksfirði varði 551 milljónir kr. í fjárfestingu á síðasta ári. Segir í skýrslu stjórnar að það sé til þess að til að þróa og styrkja grunninn fyrir aukin umsvif fyrirtækisins. Sagt er frá þessu á www.bb.is.

Þar af voru um 385 milljónir kr. vegna nýs fiskveiðiskips sem á að taka við af gamla Núp BA-690 sem er kominn til ára sinna. Skipið er Örvar SH 777 sem var í eigu Hraðfrystihúss Hellissands. Oddi fékk skipið afhent í desember 2023. Einnig var tekin sú ákvörðun að endurnýja allt frystikerfi í húsinu og er sú fjárfesting áætluð um 150-170 milljónir kr.

Hagnaður ársins varð um 215 milljónir kr. eða um 100 milljónum kr. lægri en árinu áður og segir stjórnin það vera annars vegar vera vegna minni afla og hins vegar vegna samdráttar í framleiðslu og sölu í laxavinnslu, en Oddi hefur keypt eldislax og unnið hann í verktöku.

Rekstrartekjur fyrirtækisins voru 3,3 milljarðar króna og framlegð fyrir afskriftir og fjármagnskostnað var 405 milljónir kr.

Laun og tengd gjöld voru 1.020 milljónir kr. og stöðugildin voru 64. Fækkaði þeim um 2 frá fyrra ári.

Eignir félagsins voru bókfærðar um áramótin á 4,4 milljarða króna, þar af eru fiskveiðiheimildir 2.452 þorskígildi færð á 2,3 milljarða króna.