Síldarvinnslan hefur ákveðið að styðja starfsmenn til náms með því að veita þeim lán á meðan á námi stendur. Er þetta gert til að gera starfsmönnum kleift að taka sér leyfi frá störfum á meðan náminu er sinnt. Starfsmennirnir munu síðan endurgreiða fyrirtækinu lánið með mánaðarlegum greiðslum eftir að þeir hafa lokið námi og hafið störf á ný. Í upphafi er gert ráð fyrir að þeir starfsmenn sem stunda nám í vélstjórn og völdum iðngreinum eigi rétt á láni og eins þeir sem eru í stýrimannanámi. Ráðgert er að styðja einnig starfsmenn í fleiri völdum greinum.

Ómetanlegur samningur

Fyrsti samningurinn um lán af þessu tagi hefur þegar verið undirritaður og var hann gerður við Yngvar Orra Guðmundsson nema í vélstjórn en Yngvar Orri hefur starfað hjá Síldarvinnslunni frá sumrinu 2021.

Rætt er við Yngvar Orra á heimasíðu Síldarvinnslunnar og hann spurður fyrst hvort samningurinn hefði skipt hann miklu máli.

„Já, svo sannarlega. Það er ekki auðvelt að fara í nám þegar maður er kominn með fjölskyldu og húsnæði sem þarf að greiða af. Samningurinn, sem ég gerði við Síldarvinnsluna, er afar mikilvægur og í reynd ómetanlegur. Lánið, sem um ræðir, er vaxtalaust og í samfélagi nútímans eru vaxtalaus lán ekki víða í boði. Ég er afar þakklátur vinnuveitanda mínum að bjóða upp á samninginn og ég veit að þessi möguleiki á eftir að hvetja starfsmenn til náms. Ég vildi óska þess að fleiri fyrirtæki tækju Síldarvinnsluna til fyrirmyndar á þessu sviði því það mun án efa koma öllum vel, bæði viðkomandi starfsmönnum og fyrirtækjunum,“ segir Yngvar Orri.