Um 500 manns heimsóttu Sjávarklasann í dag til að kynna sér starf fjölda nýsköpunarfyrirtækja sem tengjast hafinu. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra opnaði sýninguna.

Segja má að þarna hafi verið komið saman landsliðið í nýsköpun í öllu er við kemur bláa hagkerfinu. Gestir kynntu sér kollagen úr fiski, veiðar með ljósum, síldarlýsi, húðvörur úr þörungum, sárameðferð með fiskroði, veiðitækni, rafmagnsbáta, fiskleður, siglingakerfi, salt með beinmarningi, þjálfunarhugbúnað fyrir fiskvinnslu, fiskisnakk, fiskidrykki, líforkuver, endurunnin fiskikör, snyrtivörur úr skel og margt fleira.