Marel og Lax-Inn nýsköpunar og fræðslumiðstöð lagareldis, hafa undirritað samstarfssamning sem miðar að því að auka fræðslu, þekkingu, og styðja við að gera tækifærin sem byggja á tækniþróun og nýsköpun í vinnslu eldisafurða sýnileg.

Marel er fyrsti tækjaframleiðandinn sem undirritar samstarfssamning af þessu tagi við Lax-Inn fræðslumiðstöð.

„Öflugur mannauður er ein af undirstöðum sterkrar stöðu Marel á heimsvísu í framleiðslu tækjabúnaðar fyrir fiskvinnslu. Frekari fræðsla og þekking starfsfólks okkar á eldisstarfseminni er okkur mikilvæg og því fögnum við þessu samstarfi við Lax-Inn, nýsköpunar- og fræðslumiðstöð, og njótum góðs af fræðslumiðlun og samstarfi Lax-Inn við önnur fyrirtæki og stofnanir á þessu sviði“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fiskiðnaðar hjá Marel, í tilkynningu.

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fiskiðnaðar hjá Marel og Sigurður Pétursson, stofnandi Lax-Inn, skrifuðu undir samninginn.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fiskiðnaðar hjá Marel og Sigurður Pétursson, stofnandi Lax-Inn, skrifuðu undir samninginn.

„Marel er ekki bara stærsta fyrirtæki á Íslandi heldur einnig aðili sem er leiðandi á heimsvísu í nýsköpun og framleiðslu tækja- og tæknilausna á sviði framleiðslu eldisafurða. Nýverið bætti Marel við nýrri stoð í starfsemi sína með kaupum á Wenger tækja- og fóðurframleiðanda sem einnig er spennandi fyrir okkur að kynna í fræðslumiðstöð okkar. Samstarfið við Marel mun því fyrir okkur styðja við fræðslustarfsemi okkar sem og þá nýsköpun fiskeldis sem hefur á undanförnum árum verið grunnur að einni mest vaxandi atvinnugrein á Íslandi,“ segir Sigurður Pétursson, stofnandi Lax-Inn, fræðslu og nýsköpunarmiðstöðvar lagareldis.

Vaxandi fiskeldi

Samkvæmt skýrslu FAO og OECD um framtíðarsýn fiskneyslu til 2030 er gert ráð fyrir því að vegna mannfjölgunar þurfi að mæta um 20 milljón tonna eftirspurn eftir fiskafurðum með auknu eldi. Ekki gert ráð fyrir aukningu úr hefðbundnum veiðum sem hefur næstum staðið í stað í þrjá áratugi á heimsvísu. Það eru þegar 6 ár síðan heimsframleiðslan af eldisafurðum tóku fram úr hefðbundnum veiðum fiskafurða til manneldis.

Mikil aukning hefur orðið á síðustu árum í laxfiskaeldi á Íslandi sem síðustu ár hefur verið leidd af hröðum vexti laxeldis í sjó og sú þróun hvergi í heiminum verið hlutfallslega jafn mikil og hér á landi.

Ísland er þegar leiðandi á heimsvísu í eldi á bleikju sem og landeldi á Atlantshafslaxi og landeldisfyrirtækin hér á landi gera ráð fyrir að ná svipuðum vexti og sjóeldið og vera komin í um 100 þúsund tonn á næstu 3-5 árum.