Heildarafli ársins 2021 var tæplega 1,2 milljónir tonna sem er 13% meiri afli en árið á undan. Rúmlega helmingur aflans var uppsjávarafli, þar af var kolmunni 190.000 tonn, síld tæplega 186.000 tonn og loðna tæp 147.000 tonn. Engin loðna veiddist árið 2020.

Hagstofan greinir frá.

Botnfiskafli var um 473.000 tonn og þar af var þorskaflinn tæp 272.000 tonn, ufsi um 60.000 tonn og ýsa rúm 56.000 tonn. Magn uppsjávarafla jókst um 24% frá fyrra ári og magn botnfiskafla um tvö prósent. Flatfiskafli var tæplega 25.000 tonn árið 2021, sjö prósent aukning frá fyrra ári og skelfiskafli var rúmlega 6.000 tonn, sem er 27% aukning samanborið við árið 2020.

Aflamagn í desember 2021 var tæp 127.000 tonn sem er 72% meiri afli en í desember 2020. Munar þar mestu um tæp 76.000 tonn af loðnu.

Magnvísitala landaðs afla í desember 2021 er 94 sem bendir til þess að aflaverðmæti geti verið rúmlega 52% hærra en í desember 2020.