Gerðar voru tilraunir með fimm tegundir af fóðri með mismunandi hlutfalli af innblönduðu repjumjöli og svo hefðbundnu fóðri til samanburðar.

Upphafsþyngd fiskanna var 350 grömm og stóð tilraunin yfir í átta mánuði en á þeim tíma fjórfölduðu fiskarnir sig í þyngd. Í frétt Matís segir að niðurstöður verkefnisins voru fjölmargar, en upp úr hafi staðið að allt að 10% innblöndun repjumjöls í vaxtarfóður fyrir lax virðist ekki hafa mælanleg neikvæð áhrif á vöxt, fóðurnýtingu eða holdgæði smálaxa.

Farið verður með lokaskýrslu verkefnisins sem trúnaðarmál til 1. janúar 2024, en að þeim tíma liðnum verður unnt að nálgast skýrsluna.