Hampiðjan hefur undanfarna áratugi staðið fyrir ferðum í tilraunatankinn í Hirtshals í Danmörku, þar sem hin ýmsu veiðarfæri eru sýnd og prófuð. Ákveðið hefur verið að efna til slíkrar ferðar í lok nóvember eftir tveggja ára hlé vegna Covid. Farið verður þann 29. nóvember n.k. og komið heim 3. desember.
Áhersla verður lögð á að skoða það nýjasta í togveiðarfærum Hampiðjunnar, bæði botntrollum og flottrollum.
Thyborøn mun kynna það nýjasta í Thyborøn hlerum og Simberg mun kynna það nýjasta frá Simrad. Á milli þess sem veiðarfærin eru skoðuð verða haldnir fyrirlestrar og fræðslufundir um tengd efni. Einnig verður farið í skoðunarferð í Karstensens skipasmíðastöðina í Skagen.

Í frétt frá Hampiðjunni segir að ferðir þessar séu kjörinn vettvangur skoðanaskipta um allt það sem lítur að togveiðarfærum. Síðast en ekki síst sé það stór þáttur í þessum ferðum að þarna fái menn tækifæri til að hittast.