Harðbakur EA 3 hinn nýji togari Útgerðarfélags Akureyringa hefur verið afhentur eigendum sínum  í Noregi. Í kjölfarið á uppgjöri við Vard-Aukra skipasmíðastöðina var Íslenski fáninn dreginn að húni og gert er ráð fyrir að skipið sigli af stað til heimahafnar í dag.

Frá þessu er greint á heimasíðu Samherja.

Þar segir að áætlað er að siglingin heim taki um þrjá og hálfan sólarhring. Skipstjóri á Harðbak er Hjörtur Valsson og yfirvélstjóri er Friðrik Karlsson.

Slippurinn á Akureyri tekur við skipinu þegar heim er komið og settur verður vinnslubúnaður um borð.  Stefnt er að Harðbakur hefji veiðar í byrjun nýs árs.

Samningur um smíðina var undirritaður í lok nóvember árið 2017. Skipið er hannað af Vard samsteypunni í Noregi í samvinnu við eigendur og er eitt af sjö skipum sem fjórar íslenskar útgerðir tóku sig saman um að láta smíða.

Skipin eru 28,95 metra löng og 12 metrar á breidd og eru smíðuð samkvæmt íslenskum reglum og kröfum flokkunarfélagsins  DNV GL.