HB Grandi undirritaði samning í vikunni um leigu á ísfisktogaranum Helgu Maríu, ásamt 11 manna áhöfn, til Grønlands Naturinstitut. Þar verður skipið við hafrannsóknir á hafsvæðinu við Grænland í þrjá mánuði í sumar.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.

Grænlendingarnir eru að láta smíða nýtt hafrannsóknarskip á Spáni, sem verður ekki tilbúið fyrr en um vorið 2021. Í dag eru þeir ekki með rannsóknarskip og leigja því skip til að brúa tímann þar til nýja skipið verður tilbúið.

Auk 11 manna áhafnar frá HB Granda, verða allt að 10 vísindamenn frá Grønlands Naturinstitut um borð við rannsóknir.

Áætlað er að Helga María haldi frá Reykjavík til Nuuk á Grænlandi 10. júní nk. Skipstjóri verður Heimir Guðbjörnsson.

Eins og Fiskifréttir sögðu frá nýlega Grænlendingar eru nýbúnir að undirrita samning um smíði á nýju hafrannsóknaskipi, sem á að kosta um 4,2 milljarða króna.

Grænlendingar hafa haft tvö skip í hafrannsóknum. Annað er minna, strandveiðiskip sem heitir Sanna og er í strandrannsóknum og inni í fjörðum. Hitt hét Paamiut, stærra skip sem nú er ónýtt og hefur verið afskráð.

Það var yfir 40 ára gamalt skip sem borgaði sig ekki að gera við.