KAPP ehf. og danska skipasmíðastöðin Karstensen Skibsværft, undirrituðu í gær samning um kaup Karstensen á Optim-ICE® kælibúnaði sem fer í skip frá þremur útgerðum í Noregi, Svíþjóð og Skotlandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stærsta skipið af þessum þremur skipum er Havsrup sem verður 77 metrar að lengd og 15,60 metrar að breidd. Gollines verður 66 metra langt og 14 metrar á breidd og Sille Marie 70 metrar á lengd og 15 metrar á breidd. Öll skipin eru hönnuð af Karstensen Skibsværft í samvinnu með kaupendur. KAPP ehf. mun sjá um framleiðslu og uppsetningu á Optim-ICE® ískrapakerfum um borð í öll skipin.

„Þetta er stór og mikilvægur samningur og sérstaklega í ljósi þess að Rússland hefur lokast. Rússland hefur verið stór markaður fyrir okkur en við höfum þurft að hugsa upp á nýtt og stilla upp nýju leikkerfi. Það er því afar ánægjulegt að ná að þessum mikilvæga samningi við dönsku skipasmiðastöðina. Það opnast ný tækifæri og við horfum björtum augum til framtíðar," segir Freyr Friðriksson, eigandi KAPP, en undirskrift samningsins fór fram á sjávarútvegssýningunni í Færeyjum í gær.

Freyr segir að á Optim-ICE® kælibúnaðurinn hafi á undanförnum árum sannað sig sem sérlega góð hraðkæling fyrir útgerðir og fiskvinnslur.

„Um er að ræða fljótandi ís sem leysir af hólmi hefðbundinn flöguís og er framleiddur um borð í skipunum. Kælingin umlykur fiskinn og heldur honum í kringum 0°C gráður allan fiskveiðitúrinn, í löndun, í flutningum o.s.frv. Kælikeðjan rofnar því aldrei með Optim-ICE®."

Allur Optim-ICE® búnaður er hannaður og framleiddur hjá KAPP ehf. í Kópavogi og hefur verið seldur um allan heim síðan 1999.