Vísindamenn á tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar hafa í fyrsta sinn ræktað loðnu frá klaki til fullorðinsaldurs í eldisumhverfi. Þetta kemur fram á vef Hafrannóknarstofnunar.
„Loðnuhrogn voru frjóvguð um borð í uppsjávarskipinu Víkingi AK 100 og flutt þaðan í tilraunaeldisstöðina á Stað við Grindavík, þar sem lirfurnar klöktust út 30 dögum síðar,“ segir í færslunni.
Fram kemur að ræktun loðnulirfanna hafi verið byggð á eldisaðferðum sem hafi verið þróaðar í eldisstöðinni til eldis á þorski með góðum árangri.
„Við stöðugt hitastig (7°C) var vöxtur loðnunnar jafn og ör, og fyrstu loðnurnar náðu kynþroska aðeins ári frá klaki. Á öðru ári dró úr vexti, og loðnan náði hámarkslengd, 18,4 cm, á aðeins 2,6 árum, sem er umtalsvert skemmri tími en hjá villtri íslenskri loðnu.
Þessi rannsókn veitir mikilvæga innsýn í vaxtarfræði og líffræði þessarar mikilvægu tegundar og leggur grunn að frekari loðnurannsóknum í tilraunaumhverfi. Þrátt fyrir að loðnan sé afar viðkvæm fyrir meðhöndlun gerir stuttur líftími hennar hana að efnilegu tilraunadýri.
Frekari loðnurannsóknir eru nú í framkvæmd í tilraunaeldisstöðinni, og búist er við að niðurstöður þeirra verði birtar á komandi árum.
Grein um rannsóknina, sem nýlega var birt "Cultivation and Growth Dynamic (Mallotus villosus) from Hatch to Adulthood", má nálgast hér.
YouTube myndband sem gefur innsýn í eldisferilinn má sjá hér,“ segir á vef Hafrannóknarstofnunar.