„Þetta er búin að vera ágæt veiðiferð hjá okkur. Það vantar tíu tonn upp á fullfermi,” segir Jóhannes Ellert Eiríksson, skipstjóri á ísfisktogaranum Viðey RE, í umfjöllun á heimasíðu Brims en hann var þá að veiðum suðvestur af landinu. Viðey landaði síðan í Reykjavík í gær rúmlega 200 tonnum af þorski, ufsa og karfa.

Að hans sögn hafði veiðiferðin verið skrykkjótt með tilliti til afla, eins og gerist, en mikill tími hefur farið í siglingar milli svæða til að ná í einstakar tegundir.

„Það hefur gengið erfiðlega að ná í ufsa enda eru allir að reyna við ufsann þessa dagana. Við byrjuðum veiðar fyrir sunnan en heyrðum þá um góða ufsaveiði norður á Hala. Við fórum því þangað en þegar við komum var ufsaveiðin dottin niður. Við veiddum því þorskinn þar og drifum okkur svo aftur suður eftir um sólarhring á Halanum,” segir Jóhannes Ellert.

Að sögn þessa margreynda skipstjóra er orðið erfitt með að sneiða hjá því sem ekki má veiða.

„Karfinn er svo gott sem friðaður því það hættir enginn sér inn á þau svæði sem vitað er að karfi er á. Það fer því enginn á Fjöllin til að leita að ufsa. Hið sama á við um Skerjadjúp. Þangað fara bara frystitogarar sem veiða gulllax,” segir Jóhannes Ellert.