Samningur milli Fjarðabyggðarhafna og verktakafyrirtækisins MVA ehf. um lengingu Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði var undirritaður á mánudaginn.
„Mun bryggjan breyta til muna aðstöðu til löndunar uppsjávarafla í fiskimjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar ásamt útskipun afurða frá fyrirtækinu. Vinna við bryggjuna mun hefjast á næstu vikum og áætlað er að framkvæmdum verði lokið 15. júlí næstkomandi,“ segir á vef Fjarðabyggðar.
Í útboðsauglýsingu vegna framkvæmdarinnar kom meðal annars fram að steypa eigi 71 metra langan landvegg og gera 210 fermetra akkerisplötu.