Alls 1.074 tonnum verður bætt við aflaheimildir í strandveiðum sumarsins. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð þess efnis.

Við breytinguna aukast aflaheimildir til strandveiða um 874 tonn af þorski sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl á skiptimarkaði, 50 ónýtt tonn sem voru færð frá frístundaveiðum og 150 ónýtt tonn vegna línuívilnunar. Samtals er því 1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn.

„Með þessu hækkar hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks upp í rúm 5% og hefur ekki svo stórum hluta leyfilegs heildarafla þorsks áður verið ráðstafað til strandveiða," segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Þessi ráðstöfun er sagður „liður í aðgerðum til að festa strandveiðar betur í sessi enda skipta strandveiðar sköpum fyrir margar fjölskyldur í landinu.“