Bæði skip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, halda til loðnumælinga í dag. Markmiðið er að ná mælingu á stærð hrygningarstofnsins á næstu tveimur vikum.

Í tilkynningu frá Hafró segir að fyrir liggur mæling á stærð stofnsins frá því í haust við Grænland sem leiddi til ráðgjafar upp á rúm 904 þúsund tonn. Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að sú ráðgjöf verði endurskoðuð að loknum mælingum nú í vetur.

Lokaráðgjöf um aflamark fyrir yfirstandandi vertíð mun svo byggja á niðurstöðum þessara tveggja mælinga.

Á síðustu árum hefur loðnuskipaflotinn tekið þátt í þessum mælingum en ekki er gert ráð fyrir slíku í ár þar sem þau skip eru upptekin við veiðar. Útgerðir munu hins vegar veita aðstoð og upplýsingar um loðnudreifingu sem nýtast við mælingarnar.

Nokkrir þættir geta svo haft áhrif á endanlegt yfirferðarsvæði skipanna svo sem veður, dreifing loðnu og hafís.