Alls bárust 316 tonn af bolfiski að landi í Patrekshöfn í mars. Allur afli var fenginn á línu. Núpur BA fór sjö veiðiferðir og landaði samtals 315 tonnum. Auk hans fór Sindri BA eina veiðiferð og kom með 1 tonn að landi. Bæjarins bestu greindu frá þessu.

Einar Guðnason ÍS með 199 tonn

Á Suðureyri var einnig gert einvörðungu út á línu í marsmánuði. Þar var Einar Guðnason ÍS langaflahæstur með 199 tonn í 17 róðrum.

Hrefna ÍS var með 56 tonn í 7 róðrum og Eyrarröst ÍS með 17 tonn í fimm róðrum.

Tveir bátar til viðbótar lönduðu afla í mánuðinum, Viktoría ÍS var með 2,2 tonn og Straumnes ÍS með 1,6 tonn, hvor bátur í einum róðri.