Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur sagt upp áhöfn Stefnis ÍS upp frá og með áramótum. Alls er 13 manns í áhöfn skipsins. Í frétt frá HG segir að leitast verði við að útvega þeim sem missa vinnuna störf á öðrum skipum félagsins eins og kostur er.

Ástæða uppsagnanna er sú að ákveðið hefur verið að hætta útgerð Stefnis.

„Úthlutað aflamar í þorski hefur dregist saman um 23% á síðustu tveimur fiskveiðiárum og dragast aflaheimildir HG hf. saman um 1.200 tonn við það. Einnig hefur orðið verulega skerðing í úhlutuðu aflamarki í gullkarfa, sem hefur verið mikilvæg tegund í útgerð Stefnis. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hætta útgerð Stefnis. Með þeirri aðgerð mun rekstrargrundvöllur annarra skipa félagsins styrkjast,“ segir í frétt HG.

Stefnir ÍS 28 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1976 fyrir Flateyringa og bar fyrst nafnið Gyllir ÍS 261. Skipið var keypt til Ísafjarðar í ársbyrjun 1993 og hefur verið gert út frá Ísafirði í nær 30 ár og hefur útgerð skipsins gengið vel.